Porsche heldur áfram að skara fram úr þegar kemur að öryggi og fer mun lengra en kröfur gera um.
Alrafmagnaður Porsche Macan hefur fengið hæstu einkunn, fimm stjörnur, í Euro NCAP prófinu og hlaut hæstu einkunn í öllum flokkum. Til að tryggja hámarks öryggi í öllum sínum bílum er Porsche stöðugt að þróa og prófa ný aðstoðarkerfi. Frammistaða þeirra fer langt fram úr því sem lög gera ráð fyrir.
Með fimm stjörnu einkunn hefur alrafmagnaður Porsche Macan náð bestu mögulegu heildareinkunn í Euro NCAP (New Car Assessment Program). Þetta er staðlað prófunarkerfi til að meta og bera saman öryggi ökutækja. Á tveggja til þriggja ára fresti eru prófunarviðmið endurskoðuð, og kröfurnar hækka stöðugt. Í Euro NCAP prófinu hefur Macan sannað sig sem einn öruggasti bíll ársins 2024. Um 150 þróunar-, verkfræði- og prófunaraðilar komu að þróun og innleiðingu öryggiskerfa í bílnum, sem tók um þrjú ár.Fara langt umfram þær kröfur sem gerðar eru til bílaframleiðanda„Við þróun þessara kerfa fer Porsche alltaf langt umfram lágmarks til að hámarka öryggi,“ segir Björn Kern, öryggissérfræðingur hjá Porsche. Til dæmis notar neyðarhemlunarkerfið í Macan gögn úr frammyndavél, ásamt skynjarafyrir miðju og sitthvoru megin að framan. Samkvæmt lögum myndi aðeins frammyndavélin duga. Samblanda radar og myndavéla stækkar sjónsviðið til muna. Með þessari aðferð bregst Macan einnig við flóknum aðstæðum, eins og í myrkri þegar gangandi vegfarandi birtist úr blindhorni eða við beygjur á gatnamótum.
Neyðarhemlun og útgangsviðvörun með miklu öryggi
„Stærsta áskorunin er að byggja upp traust á kerfunum. Þú tekur aðeins eftir þeim þegar nærri því er orðið of seint og hættulegar aðstæður skapast,“ segir Björn Kern. Viðbragðsferli aðstoðarkerfisins er þannig að bíllinn gefur fyrst út viðvörun svo ökumaður geti brugðist við. Ef ökumaður bregst ekki við, hemlar kerfið sjálfkrafa til að minnka afleiðingar áreksturs eða koma í veg fyrir hann alveg. Euro NCAP undirstrikar: „Frammistaða sjálfvirka neyðarhemlunarkerfisins (AEB) var fullnægjandi í prófunum með öðrum ökutækjum. Árekstrar voru forðað í nokkrum prófum.“ Prófið leggur einnig áherslu á vernd kerfisins fyrir gangandi vegfarendur og hjólreiðafólk.
Aksturslínuvörn og akreinarhjálp bjóða einnig upp á mikilvæg aukin öryggi, sérstaklega á hraðbrautum. Önnur nýjung er útgangsviðvörunarkerfið, sem veitir sjónræna áminningu við allar hurðir ef vegfarendur nálgast aftan frá. Ef hætta er á árekstri, til dæmis við hjólreiðamann, seinkar kerfið opnun hurðarinnar og dregur þannig úr hættu. Þreyta og truflun eru einnig algengar ástæður slysa. Hlétilmæli benda á hvíld ef ökumaður sýnir merki um aukna þreytu. Tilmælin byggja á greiningu á akstri og hegðun í aksturslínu. Í framtíðinni munu myndavélakerfi innan í bílnum geta greint örsyfju eða sjónræna truflun, sem mun auka öryggið enn frekar.
Þrátt fyrir nýstárleg aðstoðarkerfi er ábyrgðin alltaf í höndum ökumannsins.
Við Euro NCAP prófin verja ökutækin um tveimur mánuðum á sérstakri prófunarbraut, í rannsóknarstofum og á vegum. Fjórir af sex bílum eru til að mynda gereyðilagðir í hinum ýmsu árekstrarprófum. Öryggiskerfin eru prófuð í nákvæmum, vélmennaaðstoðuðum akstursprófum. Þar náði Macan glæsilegri einkunn, 78 prósent. Euro NCAP metur vernd viðkvæmra vegfarenda á 83 prósent, og vernd fyrir farþega og börn á 90 prósent hvort fyrir sig.