Við höfum margt uppá að bjóða
Með nýjum höfuðstöðvum Porsche á Íslandi verður starfsaðstaða starfsmanna með þeim allra bestu á landinu. Hjá Porsche leggjum við einnig mikla áherslu á að starfsfólk hafi möguleika á því að vaxa í starfi og því býðst starfsmönnum uppá að sækja námskeið og þjálfun í gegnum starfsþjálfunarvettvang Porsche.
Fjölbreytt tækifæri
Starfsmenn Porsche hafa aðgang að starfstorgi Porsche á heimsvísu þar sem mörg áhugaverð tækifæri eru í boði, hvort sem er hjá Porsche verksmiðjunum eða hjá öðrum Porsche umboðum úti í heimi.
Störf í boði:
--
Sölustjóri Porsche á Íslandi
Porsche á Íslandi leitar að öflugum einstaklingi í starf sölustjóra. Viðkomandi þarf að hafa haldbæra reynslu af sölustörfum, þekkingu á bílamarkaðinum, mikla þjónustulund, skipulögð vinnubrögð og leiðtogahæfni.
Starfssvið:
- Ber ábyrgð á mótun stefnu og markmiða söludeildar Porsche í samráði við forstjóra
- Ber ábyrgð á gerð söluáætlana og eftirfylgni þeirra í samstarfi við markaðsstjóra
- Ber ábyrgð á rekstri og daglegri starfsemi söludeildar og stýrir sölufundum
- Yfirumsjón með tilboðsgerð og uppítökum
- Vinnur með vörumerkjastjóra Porsche að pöntunumá nýjum bílum
- Sala og ráðgjöf til viðskiptavina
Hæfniskröfur:
- Reynsla af sölustjórnun
- Þekking á bílamarkaðinum
- Leiðtogahæfileikar og frumkvæði til að ná árangri
- Framúrskarandi þjónustulund
- Góð færni í mannlegum samskiptum
- Útsjónarsemi og sjálfstæð vinnubrögð
- Góð Excel og almenn tölvukunnátta
- Góð enskukunnátta í töluðu og rituðu máli
- Sala og ráðgjöf til viðskiptavina
Umsókn ásamt ferilskrá sendist fyrir 10. febrúar, merkt „Sölustjóri Porsche“, á netfangið Tryggvi@benni.is
--
Söluráðgjafi Porsche á Íslandi
Við leitum að söluráðgjafa Porsche á Íslandi. Starfið felur í sér kynningu, ráðgjöf og þjónustu vegna bílakaupa. Viðkomandi þarf að hafa haldbæra reynslu af sölustörfum, vera skipulagður, framtakssamur og með mikla þjónustulund.
Starfssvið:
- Sala og ráðgjöf til viðskiptavina
- Móttaka gesta í sýningarsal
- Hafa samband við viðskiptavini með úthringingum
- Gerð tilboða og eftirfylgni
- Afhending bifreiða og eftirþjónusta
Hæfniskröfur:
- Reynsla af sölumennsku
- Góð framkoma og hæfni í samskiptum
- Snyrtimennska
- Útsjónasemi og sjálfstæð vinnubrögð
- Góð tölvukunnátta
- Gott vald á íslensku, bæði munnlega og skriflega
Umsókn ásamt ferilskrá sendist fyrir 10. febrúar, merkt „Söluráðgjafi Porsche“, á netfangið Tryggvi@benni.is