Á laugardaginn næstkomandi mun Bílabúð Benna frumsýna nýjustu kynslóð af Porsche Macan sportjeppanum. Macan hefur notið mikilla vinsælda síðan hann kom á markað árið 2015 og hefur verið einn mest seldi bíll Porsche. Hann kemur nú 100% rafmagnaður og verður fáanlegur í þremur útfærslum; Macan 4, Macan 4S og Macan Turbo. Allar eru með fjórhjóladrifi, 100 kWh rafhlöðu, og allt að 2.000 kg dráttargetu. Fjórhjóladrifinn Macan 4 kostar 14.950.000 kr.
Góð drægni og mikill kraftur.
Með nýrri 800 volta rafhlöðutækni býður Macan upp á óviðjafnanlega hröðun og lipurð, ásamt góðri drægni sem mætir þörfum daglegs lífs sem og lengri ferða. Macan 4 er með allt að 612 km drægni (sk. WLTP m.v. blandaðan akstur) og er 408 hestöfl. Verðið kemur líka skemmtilega á óvart en hann kostar 14.950 þúsund kr. Macan Turbo er með allt að 591 km drægni og er heil 639 hestöfl en hann er aðeins 3.3 sek frá 0-100 km/klst. Macan 4S er svo þarna mitt á mili með 606 km drægni og 516 hestöfl. Hámarkstorg er með eindæmum gott í öllum útfærslum eða frá 650 Nm og upp í 1130 Nm í Turbo.
Útlitið einkenndist af sportlegu yfirbragði sem heldur í klassíska hönnun Porsche. Ljósabúnaður hefur verið uppfærður að framan og aftan sem eykur sýnileika og öryggi í umferðinni. Innanrýmið einkennist af lúxus, þægindum, nýjustu tækni og notendanvænum sertiskjá.
„Við höfum beðið lengi eftir því að fá að kynna nýjan Macan fyrir landsmönnum og erum ánægð að loksins sé komið að því. Með nýjum Macan eru Porsche enn og aftur að sýna mátt sinn sem bílaframleiðandi og við erum sannfærð um að landsmenn muni falla fyrir þessum magnaða sportjeppa. Nýr Macan er hluti af markmiðum Porsche til að auka framleiðslu á rafbílum og draga úr kolefnisspori” segir Benedikt Eyjólfsson, forstjóri Bílabúðar Benna.
Frumsýningin hefst kl 12 og fer fram í sýningarsal Porsche á Krókhálsi 9.